Header Paragraph

Tíu prósenta fjölgun umsókna í grunnnámi og tæplega átta í framhaldsnámi við HÍ

Image
Aðalbygging Háskóla Íslands
  • Ríflega 9.200 umsóknir um grunn- og framhaldsnám við HÍ
  • 800 umsóknir bárust um nám í íslensku sem öðru máli
  • Viðskiptafræði, læknisfræði, sálfræði, tölvunarfræði og verkfræðigreinar einnig vinsælar
  • Rúmlega 2.500 erlendar umsóknir bárust Háskólanum

Háskóla Íslands bárust rúmlega 9.200 gildar umsóknir um grunn- og framhaldsnám fyrir næsta skólaár. Fjölgun umsókna milli ára nemur tíu prósentum í grunnnámi og tæpum átta prósentum í framhaldsnámi. Umsóknarfresti um grunnnám lauk þann 5. júní og um flestar námsleiðir í framhaldsnámi þann 15. apríl. 

Alls bárust skólanum 5.085 gildar umsóknir um grunnnám og fjölgar umsóknum í langflestum deildum skólans milli ára. Heildarfjölgunin er sem fyrr segir rúm 10 prósent en þessi aukning bætist við fjölgun umsókna milli áranna 2022 og 2023 sem var rúm sex prósent.

Þessi mikla aukning í umsóknum er afar ánægjuleg og ber vott um það ótvíræða traust sem almennt er borið til Háskóla Íslands. Það er einnig afar gleðilegt að sjá að umsóknum hefur fjölgað tvö ár í röð í Háskóla Íslands,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ. 

Menntun á öllum sviðum er gríðarlega mikilvæg Íslendingum í þeirri samkeppni sem blasir við okkur á næstu árum. Þar er þekkingin leiðarljósið. Þau sem hafa nú sótt um nám við HÍ og setjast hér á skólabekk næsta haust munu án vafa hafa afgerandi áhrif á atvinnulíf og samfélag hér á landi og víðar á næstu árum og áratugum.

Tæplega 1.200 umsóknir bárust Heilbrigðisvísindasviði að þessu sinni. Flestar umsóknir voru um námsleið í læknisfræði en rúmlega 270 skráðu sig í inntökupróf í greininni sem fór fram dagana 6. og 7. júní. Alls verða 75 nemendur teknir inn í námið að þessu sinni, 15 fleiri en undanfarin ár. Þá þreyttu 89 inntökupróf í sjúkraþjálfunarfræði og rúmlega 53 í tannlæknisfræði. Enn fremur bárust 250 umsóknir um nám í sálfræði og Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild fékk rúmlega 200 umsóknir. Námsleið í lífeindafræði bárust enn fremur 80 umsóknir, rúmlega 60 vilja hefja nám í lyfjafræði og 44 í Matvæla- og næringarfræði.

Áhugi á skólanum meðal alþjóðlegra nemenda hefur aukist mjög á síðustu árum samhliða vaxandi erlendu samstarfi skólans og aukinni alþjóðavæðingu íslensks samfélags. Svo er einnig í ár og erlendum umsóknum fjölgar um nærri 46% og eru samtals rúmlega 2.500. Háskóli Íslands beitir ströngum viðmiðum og umsóknargjaldi til þess að tryggja að einungis berist marktækar umsóknir um nám frá erlendum umsækjendum.
 

Image
Aðalbygging Háskóla Íslands

Háskóla Íslands bárust rúmlega 9.200 gildar umsóknir um grunn- og framhaldsnám fyrir næsta skólaár. Fjölgun umsókna milli ára nemur tíu prósentum í grunnnámi og tæpum átta prósentum í framhaldsnámi. MYND/Kristinn Ingvarsson