""

Sameinuð ráðstefna Háskóla Íslands og Landspítala

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og Landspítali hafa sameinað vísindaráðstefnur sínar í eina öfluga ráðstefnu sem miðar að því að efla tengsl, samvinnu og sýnileika vísinda. Nýja ráðstefnan ber heitið Vísindi á vordögum og verður haldin í apríl 2026. 

Markmið ráðstefnunnar er að kynna rannsóknarstarf stofnananna, efla þverfræðilegt samstarf vísindafólks og jafnframt skapa vettvang fyrir miðlun rannsókna. Á ráðstefnunni koma saman vísindamenn, sérfræðingar, kennarar, nemendur, fulltrúar fyrirtækja og áhugasamur almenningur til að kynna og ræða nýjustu rannsóknir og þróun í líf- og heilbrigðisvísindum á Íslandi. 

Dagskrá ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt en alla jafna eru á dagskrá um 200 erindi, 40 örfyrirlestrar. Viðfangsefni rannsóknanna eru af ólíkum toga og úr flestum greinum líf- og heilbrigðisvísinda. Einnig er boðið upp á áhugaverða gestafyrirlestra og opna fyrirlestra fyrir almenning.

Þátttaka er öllum opin og gjaldfrjáls. 

Fleiri upplýsingar á vef ráðstefnunnar

Deila