
„ADHD er alltaf mjög áhugavert viðfangsefni og krakkar með ADHD eru skemmtilegustu krakkarnir en þau eru oft misskilin.“ Þetta segir Dagmar Kr. Hannesdóttir, lektor við Sálfræðideild Háskóla Íslands sem stýrir rannsókn sem hófst nú í janúar á geðheilsumiðstöð barna hjá Heilsugæslunni og miðar að því að meta áhrif hópnámskeiða og einstaklingsráðgjafar fyrir börn með ADHD (athyglisbrest og ofvirkni).
Dagmar lærði klíníska barnasálfræði í Bandaríkjunum og útskrifaðist með doktorspróf árið 2007. Hún hóf feril sinn á þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslunnar en þar sá hún skortinn á úrræðum fyrir börn með ADHD og hóf að þróa prógramm sem byggðist á rannsóknum og væri aðgengilegt fyrir íslensk börn. Dagmar hefur nú unnið að þróun úrræða fyrir börn með ADHD í meira en áratug.
„Það gleymist að taka eftir styrkleikunum þeirra þegar þau gleyma sér og fylgja ekki fyrirmælum. Það reynir á flesta kennara og foreldra að reyna að stýra þeim dags daglega en þarna er tækifæri. Þetta prógramm er hannað út frá því að vinna með þeim beint til þess að efla þau og gefa þeim verkfæri til þess að þau geti metið aðeins betur þær aðstæður sem þau eru í hverju sinni, hvort þau geti gert eitthvað öðruvísi og stóli ekki bara á að foreldrar, kennarar eða fagfólk í skólanum grípi inn í aðstæður,“ segir Dagmar.
Krakkar fá verkfæri ýmist á hópnámskeiði eða í einstaklingsráðgjöf
Í rannsókninni verður boðið upp á tvenns konar úrræði fyrir krakka með ADHD á aldrinum 9-12 ára. Úrræðin eru þó einnig opin fyrir krakka sem eru bara með annað hvort, t.d. bara með athyglisbrest. Sumir krakkarnir eru líka með fylgiraskanir eins og kvíða eða mótþróa. Mikil eftirspurn er eftir slíkum úrræðum og segir Dagmar umsóknirnar hafa flætt yfir teymið eftir að auglýsing fór í loftið og plássin fylltust á einum degi. Þrjátíu krakkar taki þátt í rannsókninni og verði þeim skipt af handahófi annars vegar á hópnámskeið og hins vegar í einstaklingsráðgjöf. Meistaranemar í klínískri barnasálfræði úr HÍ munu stýra báðum úrræðunum.
Hópnámskeiðin eru kölluð Snillinganámskeið og geta sex börn setið námskeiðið í einu. Í janúar fóru tvenn Snillinganámskeið í gang og kennt er tvisvar í viku í fimm vikur í senn. Á námskeiðinu fá börnin þjálfun í tilfinningastjórnun, samskiptum, lausnaleit og sjálfstjórn. „Krakkarnir fá möppu sem heitir Snillingarnir þar sem þau vinna alls konar verkefni. Sum þeirra eru spil eða hlutverkaleikir þar sem þau eru að æfa sig í ákveðnum viðbrögðum. Við reynum að setja alla þessa fræðslu í skemmtilegan búning þar sem þau eru aktív. Ekki bara að sitja og meðtaka eitthvað uppi á töflu. Svo er náttúrulega líka mikið af umræðum í hópnum,“ lýsir Dagmar.
Samhliða Snillinganámskeiðunum hófst einstaklingsráðgjöfin. Hún kallast Krakkaráðgjöf og fá tólf aðrir krakkar aðgang að henni. Þau munu hitta sérfræðing einu sinni í viku í fimm vikur í senn og fá fræðslu. Dagmar segir Krakkaráðgjöfina hafa svipað innihald og Snillinganámskeiðin. Krakkarnir fái bók með prógrammi sem þau fylgi. Þau læri að breyta skipulaginu hjá sér, t.d. hvernig eigi að taka til í herberginu eða að hætta að gleyma alltaf sunddótinu eða sparinestinu.
Einnig er hópur krakka á biðlista sem bíða eftir að fá úrræði. Sex þeirra fara á Snillinganámskeið sem mun hefjast í mars.