""

EdAge-Physio

Erasmus+ verkefni sem hefur það að markmiði að efla menntun í sjúkraþjálfun eldra fólks og ýta undir áhuga nemenda og sjúkraþjálfara á að starfa með eldra fólki.

""

EdAge-Physio

Erasmus+ verkefni sem hefur það að markmiði að efla menntun í sjúkraþjálfun eldra fólks og ýta undir áhuga nemenda og sjúkraþjálfara á að starfa með eldra fólki.

EdAge-Physio er Erasmus+ verkefni sem hefur það að markmiði að efla menntun í sjúkraþjálfun eldra fólks og ýta undir áhuga nemenda og sjúkraþjálfara á að starfa með eldra fólki. Í verkefninu er lögð áhersla á að nemendur í sjúkraþjálfun öðlist þá hæfni, trú á eigin getu og áhugahvöt sem þarf til að mæta þörfum eldra fólks af fagmennsku og öryggi. Þróað verður sveigjanlegt námsefni sem hægt er að nýta innan núverandi námskeiða eða sem sjálfstæð námskeið. Þannig verður mögulegt að laga efnið að ólíkri uppbyggingu sjúkraþjálfunarnáms við háskóla í Evrópu og víðar.

""

EdAge-Physio miðar því að því að:

  • auka áhuga nemenda og sjúkraþjálfara á að starfa með eldra fólki og stuðla að jákvæðum viðhorfum til þess starfsvettvangs
  • þróa sveigjanlegt námsefni sem inniheldur tillögur að kennsluaðferðum og hægt er að laga að ólíkri uppbyggingu sjúkraþjálfunarnáms
  • stuðla að því að menntun sjúkraþjálfara taki mið af þörfum og væntingum eldra fólks.

Verkefnið er jafnframt í samræmi við Áratug Sameinuðu þjóðanna um heilbrigða öldrun (2021–2030) þar sem meðal annars er lögð áhersla á að vinna gegn aldursfordómum, skapa aldursvænt umhverfi og tryggja aðgengi að langtímaþjónustu.

Samstarfsaðilar í EdAgePhysio eru frá fimm Evrópulöndum: Belgíu, Hollandi, Íslandi, Noregi og Portúgal. Í verkefninu vinna háskólar, kennarar, nemendur, nýútskrifaðir sjúkraþjálfarar og eldra fólk saman að þarfagreiningu, þróun og innleiðingu námsefnis og vitundarvakningu um mikilvægi sjúkraþjálfunar fyrir eldra fólk. Markmiðið er að efla hæfni framtíðarsjúkraþjálfara og stuðla að jákvæðum viðhorfum og auknum áhuga á störfum með eldra fólki.

Í verkefninu verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hverjar eru helstu þarfir, áskoranir og tækifæri í þátttökulöndunum fimm varðandi menntun í sjúkraþjálfun fyrir eldra fólk?
  • Hvaða þættir eru nauðsynlegir við þróun og innleiðingu verkfærakistu fyrir kennslu sem inniheldur hugmyndir að sveigjanlegu námsefni og kennsluaðferðum?
  • Hvernig má auka vitund um mikilvægi sjúkraþjálfunar fyrir eldra fólk meðal bæði nemenda og fagfólks í þátttökulöndunum fimm?
Þátttakendur

Sólveig Ása Árnadóttir, PhD, er prófessor í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Hún kennir meðal annars námskeið um öldrunarfræði, öldrunarsjúkraþjálfun og staðlaðar mælingar á færni og leiðbeinir nemendum í rannsóknarverkefnum á sviði öldrunar. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í þróun kennslu um öldrun í sjúkraþjálfunarnáminu. Rannsóknir hennar beinast að öldrun, færni, hreyfingu og byltum meðal eldra fólks. Hún hefur sérfræðiviðurkenningu í öldrunarsjúkraþjálfun og klíníska reynslu og nýtir þá reynslu, rannsóknir og alþjóðlegt samstarf til að efla menntun sjúkraþjálfara og sjúkraþjálfun eldra fólks.

Steinunn A. Ólafsdóttir, PhD, er lektor í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Hún er meðlimur í Kennsluakademíu opinberu háskólanna á Íslandi, sem miðar að því að efla kennsluþróun og bætta kennsluhætti við háskólana. Í kennslu leggur hún áherslu á að hvetja nema til þátttöku á öllum stigum og styðja þá í að finna hagnýtt gildi námsins. Hún hefur einnig mikinn áhuga á hermikennslu.

Abigail G. Snook lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2020 þar sem hún notaði blandaðar rannsóknaraðferðir til að kanna stuðningsþarfir kennara. Hún er sjúkraþjálfari með klíníska reynslu af starfi með eldra fólki og kennir nú sjúkraþjálfunarnemum við Háskóla Íslands. Hún hefur birt nokkrar greinar um fræðslu til sjúklinga og lauk M.Ed.-gráðu árið 2015 með áherslu á kennsluhönnun. Lokaverkefni hennar var vefsíða til að aðstoða umönnunaraðila við að hjálpa eldra fólki að nota Internetið.

Katrijn D’Herdt er sérfræðingur í menntunarfræðum og alþjóðavæðingu. Hún hefur víðtæka þekkingu á námskrám og hönnun náms og reynslu af Erasmus+ verkefnum, alþjóðlegu samstarfi, nemendaskiptum og alþjóðavæðingu námskrár. Hún hefur gott tengslanet meðal alþjóðlegra samstarfsaðila og góða yfirsýn yfir sjúkraþjálfunarmenntun í Evrópu og er stjórnarformaður í ENPHE (European Network of Physiotherapy in Higher Education). Í EdAgePhysio kemur hún sérstaklega að umsjón verkefnisins og verkefnastjórnun. Sem stjórnarmaður í ENPHE getur hún jafnframt lagt sitt af mörkum til að auka áhrif og miðlun verkefnisins.

Karen Feyen er í doktorsnámi og tekur þátt í rannsóknum og aðstoðar við kennslu við Vrije Universiteit Brussel. Hún lauk meistaraprófi í endurhæfingarvísindum og sjúkraþjálfun árið 2022 með sérhæfingu í öldrun. Karen sameinar klíníska vinnu, rannsóknir og kennslu á sviði heilbrigðrar öldrunar. Með þátttöku sinni í námskeiðum og örnáminu Geriatric Rehabilitation & Prevention in the Context of Healthy Ageing leggur hún sitt af mörkum til menntunar bæði nema og sjúkraþjálfara.

David Beckwée er prófessor við Vrije Universiteit Brussel og University of Antwerp. Hann tengist einnig SOMT University of Physiotherapy í Hollandi. Hann er forstöðumaður rannsóknarhópsins Rehabilitation Research við VUB og verkefnastjóri fyrir Belgian Society of Gerontology & Geriatrics. Hann er einn af höfundum handbókar fyrir eldra fólk sem þróuð var í Erasmus+ verkefninu FORTIPHY, sem snýst um að draga úr hættu á vannæringu með næringarbætingu máltíða og hreyfingu hjá eldra fólki

Vrije Universiteit Brussel í Belgíu

 

Sandra Jorna-Lakke (PhD) er sjúkraþjálfari, kennari og rannsakandi við Hanze University of Applied Sciences. Hún hefur yfir 25 ára reynslu sem sjúkraþjálfari á heilsugæslu, sjúkrahúsi og í endurhæfingu. Kennsla hennar beinist að þverfaglegri menntun og samþættingu niðurstaðna rannsókna í námskrár fyrir sjúkraþjálfun. Rannsóknir hennar fjalla um ýmsa hópa sjúklinga og þverfaglega menntun heilbrigðisstétta. Hún tekur einnig þátt í verkefnum sem miða að framförum í menntun sjúkraþjálfunar og rannsóknum.

Hans Hobbelen (PhD) er leiðandi í rannsóknum á sviði hrumleika og hreyfitruflana við heilabilun. Frá árinu 2012 hefur hann verið prófessor í Ageing and Allied Health Care við Hanze University of Applied Sciences. Hans er meðlimur í Clinical Consortium on Healthy Ageing og Global Network on Long-Term Care hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Frá maí 2019 hefur hann verið forseti alþjóðasamtaka sjúkraþjálfara sem starfa með eldra fólki, IPTOP, sem er sérfræðihópur öldrunarsjúkraþjálfara innan World Physiotherapy. Hans hlaut World Physiotherapy Service Award on Education árið 2023.

Jolien Bergsma (MSc) er sjúkraþjálfari í öldrunarþjónustu og kennari og rannsakandi við Hanze University of Applied Sciences. Hún hefur meistaragráðu í taugaendurhæfingu og hefur mjög mikinn áhuga á að vinna með eldra fólki og flóknum áskorunum sem gjarnan fylgja öldruðum. Hún leggur áherslu á að hvetja nemendur til að uppgötva gildi og ánægju þess að starfa með eldra fólki og undirstrikar mikilvægi gagnreyndrar þjónustu á sviði öldrunar.

Bastiaan Ellwanger (MSc) er kennari í sjúkraþjálfun við Hanze University of Applied Sciences. Auk þess starfar hann sem sjúkraþjálfari í öldrunarþjónustu á hjúkrunarheimili. Hann metur mikils samspil klínískrar vinnu og kennslu, þar sem það gerir honum kleift að veita nemendum uppfærða og hagnýta innsýn og telur hann þetta samspil bæta gæði bæði menntunar og heilbrigðisþjónustu. Hann telur mikilvægt að sjúkraþjálfunarnemar kynnist öldrunarþjónustu og þeim flóknu áskorunum sem henni fylgja.

Hanze University of Applied Sciences í Gröningen í Hollandi

Hege Handeland er kennari í sjúkraþjálfun við HVL og verkefnastjóri EdAge-verkefnisins. Hún hefur víðtæka klíníska reynslu úr heilsugæslu, einkum af sjúkraþjálfun barna og ungmenna. Hún kennir sjúkraþjálfun barna og ungmenna, almenna færni og hreyfingu, auk samskipta og samstarfs.

Mari Kalland Knapstad er dósent í sjúkraþjálfun við HVL. Rannsóknir hennar beinast einkum að svima og jafnvægistruflunum. Auk þess starfar hún við Balance Laboratory á Haukeland University Hospital, þar sem hún sameinar klíníska vinnu, rannsóknir og þróunarstarf.

Joost Van Wijchen er dósent, aðstoðardeildarforseti við Department of Health and Functioning og námsbrautarstjóri í sjúkraþjálfun við HVL. Hann leggur áherslu á samfélagslega virkni nema og sjálfbæra sjúkraþjálfunarmenntun og leggur sitt af mörkum á alþjóðavettvangi í gegnum Environmental Physiotherapy Association og World Physiotherapy.

Silja Wessman er verkefnaráðgjafi hjá Division of Research, Internationalization, and Innovation við HVL, þar sem hún vinnur að alþjóðlegum menntaverkefnum.

Høgskulen på Vestlandet (HVL)

António Alves Lopes, MSc, er doktorsnemi í endurhæfingu, kennari í sjúkraþjálfun og umsjónarmaður Erasmus+ verkefna við SCML og með reynslu af alþjóðlegri þróun námskráa.

Patricia Almeida er með doktorspróf í heilbrigðisvísindum með sérhæfingu í taugaendurhæfingu. Hún er fyrrverandi forseti ENPHE og hefur reynslu af taugaendurhæfingu og akademísku samstarfi.

Maria da Lapa Rosado er með doktorspróf í hreyfistjórnun (human kinetics) og sérhæfir sig í heilsueflingu og líkamlegri virkni. Hún hefur einnig lokið framhaldsnámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Hún leggur verkefninu til þekkingu á heilsueflingu og þverfaglegum rannsóknum.

Escola Superior de Saúde do Alcoitão (SCML) í Estoril í Portúgal

""
Verkþættir

Eftirlit með framvindu EdAgePhysio, gæðum þess og framvindu annarra verkefnaþátta er nauðsynlegt til að tryggja að verkefnið haldist á áætlun, nái markmiðum og skili tilætluðum niðurstöðum.

Þessi verkþáttur felur í sér þarfagreiningu sem byggir á fyrri rannsóknum, rýnihópum með nemendum, nýútskrifuðum sjúkraþjálfurum og eldra fólki, rafrænni könnun meðal nemenda og greiningu á hæfniviðmiðum. Markmiðið er að varpa ljósi á viðhorf til öldrunar, hvaða þættir hafa áhrif á áhuga og starfsval, hvaða hæfni er mikilvæg í sjúkraþjálfun eldra fólks og hvernig sú hæfni samræmist væntingum eldra fólks til þjónustunnar.

Þessi verkþáttur miðar að því að þróa verkfærakistu sem inniheldur námsefni og kennsluaðferðir sem annaðhvort má innleiða sem sjálfstæð námskeið eða flétta inn í fyrirliggjandi námskeið hjá samstarfsháskólunum.

Afurðir þessa verkþáttar byggja á þarfagreiningu (verkþáttur 2) og vinnan felur í sér greiningu á núverandi námsefni og kennsluháttum innan samstarfsháskólanna. Í kjölfarið er stefnt að því að setja upp gagnagrunn með námsefni og leiðbeiningum um kennsluhætti fyrir kennslu um öldrun og öldrunarsjúkraþjálfun.

Þessi verkþáttur snýst um innleiðingu og mat á efninu sem þróað verður í verkþætti 3. RE-AIM ramminn verður notaður til að meta hvort efnið nái til markhóps, hvaða áhrif það hefur, hvernig það er tekið upp og innleitt í námsbrautum og hvort notkun þess viðhelst til lengri tíma. Horft verður bæði til nemenda, kennara og stofnananna sjálfra. Nemendur og kennarar verða jafnframt virkir þátttakendur í prófun og aðlögun efnisins.

Markmið þessa verkþáttar er að auka áhuga nemenda og sjúkraþjálfara í þátttökulöndunum á sjúkraþjálfun fyrir eldra fólk, auk þess að stuðla að jákvæðum viðhorfum í samfélaginu til öldrunar. Þetta verður meðal annars gert með samfélagsmiðlaherferð og með vitundardögum í samstarfslöndunum, þar sem jafnframt verður vakin athygli á efni sem þróað verður í EdAge-Physio.

Fjármögnun og tengiliðir verkefnisins

Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu. Skoðanir og viðhorf sem koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfunda og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins eða European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Hvorki Evrópusambandið né EACEA bera ábyrgð á þeim.

""
Deila