PROMIS Pediatric Short Form v2.0 – Fatigue
Efnisorð
- Þreyta
- Patient Reported Outcomes Measurement Information System (PROMIS®)
Stutt lýsing
- Tegund: Sjálfsmat – börn / ungmenni í almennu þýði eða með langvinna sjúkdóma. Athuga að aðrir (s.s. forráðamenn) geta gefið mat ef nauðsyn krefur
- Fjöldi atriða: 10
- Metur: Truflun eða áhrif þreytu yfir daginn. Miðað er við síðustu 7 daga
- Svarkostir: Sex punkta fullmerktur raðkvarði frá 1 (engin) til 6 (næstum alltaf)
- Heildarskor: Notast er við þar til gerðar skorunaraðferðir þar sem heildarskori er snúið yfir í T-tölur með reikniforriti (Health Measures Scoring Service) en forritið reiknar stig úr mælitækjum á borð við PROMIS spurningalistana. Forritið má finna á heimasíðu Health Measures. Sjá nánar í upplýsingaskjali hér
Íslensk þýðing
- Háskóli Íslands og PROMIS Health Organization (PHO) gerðu samning um þýðingu þessa og annarra PROMIS matskvarða – Björg Guðjónsdóttir þýddi í samræmi við verklagsreglur stofnunarinnar
Próffræðilegir eiginleikar
Áreiðanleiki: Hefur ekki verið metinn á íslensku.
Réttmæti: Hefur ekki verið metið á íslensku.
Heimildir
Upprunaleg heimild:
- Sjá hér
Próffræðigreinar:
- Ekkert fannst
Dæmi um birtar greinar:
- Ekkert fannst
Nemendaverkefni:
-
Ekkert fannst
Reglur um notkun
- Höfundarréttarvarið en í opnum aðgangi fyrir stakar, óhagnaðardrifnar rannsóknir – óska má eftir íslenskri þýðingu á translations@HealthMeasures.net.
- Höfundar leggja til staðlað útlit á spurningum – sendið póst á Help@HealthMeasures.net fyrir leiðbeiningar
Aðrar útgáfur
- PROMIS Parent Proxy Short Form v2.0 – Fatigue
- Sjá hér aðra matskvarða ætlaða börnum og ungmennum
Síðast uppfært
- 7/2024