PROMIS Pediatric Short Form v1.0 – Pain Behavior
Efnisorð
- Verkjahegðun
- Patient Reported Outcomes Measurement Information System (PROMIS®)
Stutt lýsing
- Tegund: Sjálfsmat – börn / ungmenni í almennu þýði eða með langvinna sjúkdóma. Athuga að aðrir (s.s. forráðamenn) geta gefið mat ef nauðsyn krefur
- Fjöldi atriða: 8
- Metur: Hegðun barns / ungmennis með verki, s.s. hvort það hreyfi sig hægar, verði að hætta athöfnum vegna verkja eða hvort það tali um verkina. Miðað er við síðustu 7 daga
- Svarkostir: Sex punkta fullmerktur raðkvarði frá 1 (hafði enga verki) til 6 (næstum alltaf)
- Heildarskor: Notast er við þar til gerðar skorunaraðferðir þar sem heildarskori er snúið yfir í T-tölur með reikniforriti (Health Measures Scoring Service) en forritið reiknar stig úr mælitækjum á borð við PROMIS spurningalistana. Forritið má finna á heimasíðu Health Measures. Sjá nánar í upplýsingaskjali hér
Íslensk þýðing
- Háskóli Íslands og PROMIS Health Organization (PHO) gerðu samning um þýðingu þessa og annarra PROMIS matskvarða – Björg Guðjónsdóttir þýddi í samræmi við verklagsreglur stofnunarinnar
Próffræðilegir eiginleikar
Áreiðanleiki: Hefur ekki verið metinn á íslensku.
Réttmæti: Hefur ekki verið metið á íslensku.
Heimildir
Upprunaleg heimild:
- Sjá hér
Próffræðigreinar:
- Ekkert fannst
Dæmi um birtar greinar:
- Oskarsdottir, S. A., Kristjansdottir, A., Gudmundsdottir, J. A., Kamban, S. W., Licina, Z. A., Gudmundsdottir, D. B., & Gudjonsdottir, B. (2022). Musculoskeletal pain and its effect on daily activity and behaviour in Icelandic children and youths with juvenile idiopathic arthritis: a cross-sectional case-control study. Pediatric rheumatology online journal, 20(1), 48. https://doi.org/10.1186/s12969-022-00706-6
- Gudjonsdottir, B., Oskarsdottir, S. A., Kristjansdottir, A., Gudmundsdottir, J. A., Kamban, S. W., Licina, Z. A., & Gudmundsdottir, D. B. (2024). Impact of Musculoskeletal Pain on Functioning and Disability in Children with Juvenile Idiopathic Arthritis in Iceland. Physical & Occupational Therapy In Pediatrics, 1-18. https://doi.org/10.1080/01942638.2023.2299028
Nemendaverkefni:
- Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir. (2019). Stoðkerfisverkir barna með CP sem geta gengið með eða án gönguhjálpartækja [óútgefin MS ritgerð]. Skemman. http://hdl.handle.net/1946/34520
- Svanhildur Arna Óskarsdóttir. (2020). Stoðkerfisverkir og áhrif þeirra á daglegar athafnir og hegðun íslenskra barna með barnagigt [óútgefin MS ritgerð]. Skemman.
http://hdl.handle.net/1946/35801
Reglur um notkun
- Höfundarréttarvarið en í opnum aðgangi fyrir stakar, óhagnaðardrifnar rannsóknir – óska má eftir íslenskri þýðingu á translations@HealthMeasures.net.
- Höfundar leggja til staðlað útlit á spurningum – sendið póst á Help@HealthMeasures.net fyrir leiðbeiningar
Aðrar útgáfur
- PROMIS Parent Proxy Short Form v1.0 – Pain Behavior
- Sjá hér aðra matskvarða ætlaða börnum og ungmennum
Síðast uppfært
- 7/2024