Öryggi barna í innkaupakerrum

Image
Öryggi barna í innkaupakerrum

Öryggi barna í innkaupakerrum

„Vinsamlegast setjið börn ekki ofan í innkaupakerrurnar“

- Forvarnarverkefni Rannsóknarstofu í atferlisgreiningu og Sjóvá
Öryggi barna í innkaupakerrum er átaksverkefni Rannsóknarstofu í atferlisgreiningu og Sjóvá til að vinna saman gegn slysum barna í innkaupakerrum. Verkefninu var hleypt af stokkunum árið 2013 og því er ætlað að vekja fólk til vitundar um þá hættu sem börnum stafar af því að vera laus í innkaupakerrum stórverslana. Sérstökum spjöldum var komið fyrir í innkaupakerrum í völdum verslunum til þess að sporna gegn þessari hegðun.
 

Bakgrunnur

Átakið byggist á rannsókn sem Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, prófessor í í atferlisgreiningu og atferlismeðferð við Sálfræðideild Háskóla Íslands, og nemendur hennar gerðu fyrir nokkrum árum. Markmiðið var að kanna hvort hægt væri að koma í veg fyrir að foreldrar settu börn sín ofan í innkaupakerrur en slíkt er afar hættulegt og slasast fjölmörg börn árlega eftir að hafa dottið úr innkaupakerru. Í rannsókninni var sérstöku spjaldi með mynd af barni í innkaupakerru innan í rauðum hring með bannmerki (líkt og í umferðarmerki) komið fyrir í innkaupakerrum fjögurra verslana á höfuðborgarsvæðinu. Á spjaldinu stóð jafnframt:  „Vinsamlegast setjið börn ekki ofan í innkaupakerrurnar“. Fylgst var með viðskiptavinum með börn bæði áður en spjöldin voru sett í kerrurnar, á meðan spjöldin voru í kerrunum og eftir að þau höfðu verið fjarlægð og því kannað hvort spjöldin hefðu áhrif á hegðun foreldra. Í ljós kom að mun færri foreldrar settu börn sín í kerrurnar þegar spjaldið var í þeim en á samanburðartímabilunum, hegðunin næstum hvarf. Þetta bendir til þess að inngripið sem var notað hafi haft áhrif á þessa hegðun.

Rannsóknin vakti athygli forstöðumanna forvarna hjá Sjóvá sem létu í samstarfi við Zuilmu Gabríelu útbúa eins spjöld og notuð voru í rannsókninni en nú varanleg. Þau voru m.a. sett í kerrur í verslun Krónunnar og síðar í verslunum Fjarðarkaup og þremur verslunum Bónus. Hægt hefur verið að rannsaka langtímaáhrif inngripsins í Fjarðarkaup. Vonast er til að fleiri verslanir sláist í hópinn og sjái hag sinn í því að koma upp sams konar spjöldum í innkaupakerrum sínum og draga þar með úr slysahættu.

Rannsóknir og greinar

Greinin „Öryggi barna í innkaupakerrum: Áhrifarík leið til að forðast slys“ eftir Árna Þór Eiríksson og Dr. Zuilmu Gabrielu Sigurðardóttur birtist í Sálfræðiritinu - Tímariti Sálfræðingafélags Íslands árið 2011.

Upphafsrannsóknin var einnig birt í tímaritinu Safety Science árið 2020. Mastersverkefni Árna Þórs Eiríkssonar sem segir frá mörgum viðbótarrannsóknum mun senn birtast í erlendu vísindariti.