Erfðafræðinefnd Háskóla Íslands

Image
""

Erfðafræðinefnd Háskóla Íslands

Stofnunin er m.a. vettvangur þverfaglegs samstarfs á sviði erfðafræði. Ábyrgðarmaður er Jón Jóhannes Jónsson, prófessor.

Erfðafræðinefnd Háskóla Íslands er rannsókna- og þjónustustofnun sem starfrækt er af heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands og Landspítala.

Hlutverk erfðafræðinefndar:

  • Að efla erfðafræðilegar rannsóknir sem unnið er að við Háskóla Íslands, Land­spítala og víðar
  • Að varðveita og reka gagnabanka nefndarinnar um ættfræði
  • Að sinna þjónustuverkefnum á sviði ætt- og erfðafræði, þar með talið erfðaráðgjöf
  • Að stuðla að sterkum tengslum innan og utan háskólans við atvinnu- og þjóðlíf

Reglur um erfðafræðinefnd Háskóla Íslands.